- 25 stk.
- 14.12.2021
Haustið 2021 ákvað stjórn félagsins að fjárfesta í nýju orlofshúsi í Svignaskarði í Borgarfirði. Húsið var tekið í notkun í desember sama ár. Fyrir átti félagið eitt hús á svæðinu. Nýja húsið er 40 cm breiðara en það eldra, að öðru leiti er það svo að segja alveg eins. Húsið er því um 80 fermetrar að stærð með öllum helstu þægindum, stórum palli og að sjálfsögðu er heitur pottur við húsið. Svefnherbergi eru þrjú, tvö hjónaherbergi og í báðum er tvíbreitt rúm og eitt herbergi með koju á þremur hæðum, neðsta kojan er 120 cm en tvær efri eru eitthvað mjórri. Svefnpláss er fyrir átta manns. Eldhús og stofa eru í sama rýminu.