Leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins

Innskráning

Á Mínum síðum Einingar-Iðju sem teknar voru í notkun 1. nóvember 2024 er að finna persónublað sem inniheldur margvíslegar upplýsingar um réttindi félagsfólks. Hægt er að sækja um orlofshús, sjúkrastyrki og sjúkradagpeninga. Jafnframt er hægt að fylgjast með réttindaávinnslu og skilum atvinnurekenda á iðgjöldum. Félagsfólk sem vinnur eftir sveitarfélagasamningi getur fylgst með inneign í Félagsmannasjóði, sem er til útgreiðslu 1. febrúar ár hvert.

Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar fyrir helstu aðgerðir inni á Mínum síðum Einingar-Iðju.

Innskráning – félagsmaður skráir sig inn á Mínar síður af heimasíðu félagsins, www.ein.is. Hægt er að nota rafræn skilríki eða auðkennisapp frá Auðkenni. 

Persónublað félagsmanns

Persónublaðið veitir góða yfirsýn yfir stöðu hvers félagsmanns. Á því má finna yfirlit yfir félagsgjöld (sem endurspegla heildarlaun), skipt eftir mánuðum og atvinnurekendum. Jafnframt má sjá réttindi í sjóðum og hvernig þau hafa verið nýtt. Í flestum tilvikum er hægt að sækja ítarlegri upplýsingar um hvert atriði. Á því má einnig skoða orlofskosti, panta og ganga frá greiðslu og sækja um styrki sem eru í boði, bæði í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði.

 

  1. Hver félagsmaður á sérstakt svæði fyrir flest undirkerfi Tótal. Þannig er hægt að sjá alla styrki úr sjúkrasjóði, yfirlit yfir sjúkradagpeninga, orlofsleigur, fræðslustyrki og iðgjaldasögu yfir lengri tíma en birtist á persónublaðinu.
  2. Tungumálafáni sýnir á hvaða tungumáli félagsmaður skoðar Mínar síður. Það hjálpar starfsfólki að ákveða á hvaða tungumáli til dæmis skeyti til viðkomandi félagsmanns fara. Þegar send eru fjöldaskeyti á margt félagsfólk og þau eru á þremur tungumálum – ræður þessi merking hvaða skeyti hver félagsmaður fær.
  3. Hér er hægt að breyta hluta persónuupplýsinga, svo sem að setja inn eða breyta upplýsingum um símanúmer, netfang og bankareikning. Einnig er hægt að skrá annað póstfang ef félagsmaður hefur aðsetur annars staðar en á lögheimili.
  4. Hér er hlekkur til að bóka orlofsíbúð eða orlofshús. Einnig kemur fram hversu marga leigudaga félagsmaður getur bókað og punktastöðu.
  5. Hér eru hlekkir til að sækja annars vegar um styrk úr sjúkrasjóði og hins vegar sjúkradagpeninga. Einnig kemur hér fram hversu mikil réttindi félagsmaður hefur. Félagsmaður sem er að hefja störf getur verið nokkra mánuði að öðlast 100% rétt.
  6. Hér er hlekkur á umsókn úr menntasjóðum og hér sést í hvaða menntasjóðum félagsmaður á réttindi. Ef félagsmaður á rétt í tveimur menntasjóðum, samtals 100% – leggur félagið réttinn saman til að greiða fullan styrk.
  7. Hér er flýtisýn á það sem er í gangi hverju sinni – sem sagt tvær síðustu hreyfingar í hverjum flokki í kerfinu.

Að bóka orlofseign

Til að komast inn á bókunarsíðuna, er smellt á takkann Orlofskerfi sem finna má efst til vinstri á Mínum síðum eða bláa takkann við Full réttindi  í orlofsrammanum á persónublaðinu. Ef ýtt er á spurningamerkið má sjá fjölda daga sem félagsmaður á eftir af leigudögum í íbúðir eða sumarhús. T.d. þýðir 7:7 að sjö af sjö dögum eru eftir af leigudögum næstu sex mánuði.

 

Á bókunarsíðunni sjást landsvæðin með orlofseignum félagsins. Þegar smellt er á eitthvert svæðið opnast listi yfir eignirnar þar (Einarsstaðir í þessu dæmi hér fyrir neðan) og um leið sést bókunarstaða hverrar eignar á viðkomandi tímabili.

Bókunarsvæði

Hægt er að framkvæma ýmsar aðgerðir og fá upplýsingar þegar farið er á bókunarsvæðið á persónublaðinu, svo sem yfirlit yfir fyrri leigur og fleira.

  1. Félagsmenn geta nálgast leigusamning sinn hér um leið og leiga er fullgreidd. Leigusamningur verður ekki til fyrr en leiga er greidd – en þá birtist hann hér hægra megin í pdf formi.
  2. Ef félagsmaður vill fá leigusamninginn í tölvupósti er nóg að smella á umslag sem mun umslag birtast hægra megin við bókunina.
  3. Óski félagsmaður eftir að setja athugasemd við leigu – til dæmis ábendingu til félagsins um eitthvað sem betur má fara – mun birtast lítill spjallgluggi hér hægra megin sem hægt verður að smella á.
  4. Staðfestingargjald kr. 2.000, sem er hluti af leiguverði, er ekki endurgreitt ef hætt er við leigu.
  5. Félagsmenn geta sjálfir flutt og breytt leigu (milli svæða, eigna og tímabila) eins oft og þeir vilja, staðfestingargjaldið eltir breytinguna.
  6. Með nýja kerfinu varð sú breyting að nú er alltaf hægt að bóka orlofshús um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi. Kerfið virkar þannig að á miðnætti bætist alltaf  einn dagur við kerfið sem hægt er að bóka. Til þessa hefur verið opnað fyrir vetrarleigu þann 1. ágúst ár hvert en með þessu nýja kerfið verður sem sagt breyting þar á.

 Að sækja um styrk í sjúkrasjóð

Þegar smellt er á Sækja um styrk í sjúkrasjóðsrammanum á persónublaðinu, birtist þessi síða.

  1. Það fyrsta sem þarf að velja er tegund styrks úr felliglugga. Þá birtast upplýsingarnar á skýringarmyndinni. Þar kemur fram, hver er hámarksfjárhæð þessarar styrktegundar, hvaða gögnum þarf að skila og hvaða skilyrði gilda um þennan tiltekna styrk. Þessar upplýsingar eru mismunandi eftir því hvaða styrkur þetta er.
  2. Næst er að hlaða upp þeim gögnum sem þurfa að liggja fyrir til að hægt sé að afgreiða umsókn, til dæmis greiðslukvittun.
  3. Skrá þarf upplýsingar um útgefanda kvittunar.
  4. Upplýsingar um umsækjanda þurfa að liggja fyrir, svo sem; nafn, kennitala, farsími, netfang og bankaupplýsingar. Öðruvísi er ekki hægt að ljúka afgreiðslu. Liggi þessar upplýsingar fyrir í kerfinu, birtast þær sjálfkrafa hér.
  5. Hér birtast upplýsingar um réttindi umsækjanda í sjóðnum til að fá þann styrk sem verið er að sækja um.
  6. Hafi atvinnurekandi ekki skilað inn réttum iðgjöldum, er hægt að leiðrétta það með því að hlaða upp launaseðli og slá inn iðgjaldafjárhæð. Mistök eða trassaskapur atvinnurekanda á ekki að bitna á félagsmanni.

 Sjúkradagpeningar

Umsóknarform fyrir sjúkradagpeninga lítur að flestu leyti út eins og formið fyrir styrkina. Mestu munar, að skila þarf inn ýmsum viðbótarvottorðum, svo sem læknisvottorði og vottorði atvinnurekanda, auk upplýsinga um persónuafslátt.

 Umsókn í fræðslusjóði

Umsóknarformið fyrir styrki úr fræðslusjóði er í langflestum atriðum sambærilegt við umsóknir úr sjúkrasjóði. Félagsmenn geta átt rétt á styrkjum úr þremur menntasjóðum, eftir því hvaða kjarasamningi þeir starfa samkvæmt. Kerfið velur réttan sjóð.

Umsækjandi þarf fyrst að velja tegund styrks úr felliglugga. Næst þarf hann að hlaða upp kvittun og skrá upplýsingar um útgefanda kvittunar. Loks þarf umsækjandi að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir um netfang, símanúmer og bankareikning, til að hægt sé að afgreiða styrkinn.

 Senda fyrirspurn til félagsins eða stofna mál

Á persónublaðinu má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál, sjá mynd.

Hægt er að senda inn almenna fyrirspurn til félagsins með því að setja inn titil, slá inn texta og senda. Ef þú hefur verið með eða ert með orlofshúsabókun eða hefur sótt um styrk/i þá getur þú valið viðkomandi áður en fyrirspurnin er send inn.

Ef þú þarft að stofna mál hjá stéttarfélaginu vegna vinnuslyss, gjaldþrots, veikinda, brota á stéttarfélagssamningi af hálfu vinnuveitanda eða annarra alvarlegra atvika, þá þarftu að ýta á vinsamlegast smelltu hér takkann sem sjá má á myndinni hér fyrir ofan. Þá birtist síðan sem sjá má hér fyrir neðan þar sem hægt er að velja tegund máls, setja inn athugasemd og senda með viðhengi ef þarf. 

 Skrá starfsstöð

Það getur skipt miklu máli fyrir verkalýðsfélög að vita á hvaða starfsstöðvum félagsmenn vinna. Bæði eru fyrirtæki og sveitarfélög,  orðin stærri en áður var og mörg fyrirtæki hafa margar starfsstöðvar.

Á mínum síðum félagsins er auðvelt að skrá starfsstöð og einnig að tilkynna um breytingu á starfsmannaflokk og jafnvel skrá starfsheiti.

Vefverslun félagsins ( í vinnslu )

Stefnt er á að vefverslun félagsins verði komin í loftið í mars 2025. Þar verður m.a. áfram hægt að versla Útilegukortið og Veiðikortið og jafnvel eitthvað fleira sem mun verða ljóst er hún fer í loftið. Samningaviðræður við ýmsa aðila eru í gangi þessa dagana.

Á Mínum síðum mun verða hægt að fara inn í Vefverslun þar sem mun birtast listi yfir valmöguleika sem félagsmanni býðst að kaupa á hagstæðu verði.