- 31 stk.
- 22.06.2017
Eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga var farin 21. júní 2017. Fyrst var farið eins og leið liggur austur á Húsavík. Þaðan var ekið upp að Þeystareikjum og svo aftur til baka niður á Húsavík þar sem Hvalasafnið var skoðað. Að því loknu var borðaður hádegismatur á Húsavík. Eftir mat var farið upp Kísilveg og farinn hringur í Mývatnssveit. Eftir það var farið á Illugastaði í Fnjóskadal þar sem drukkið var kaffi. Að lokum var farið um Víkurskarð og til Akureyrar á ný.