- 81 stk.
- 25.06.2014
24. júní var farið í árlega dagsferð fyrir aldraða félagsmenn. Ekið var af stað frá Akureyri og var stefnan tekin á
Sauðárkrók. Ekið var sem leið lá yfir Öxnadalsheiði og eftir að hafa stoppað aðeins í Varmahlíð og kíkt á
Grettislaug á Reykjaströnd var snæddur hádegisverður á Kaffi Krók á Sauðárkróki. Eftir hádegi var farið fyrir Skagann og
kíkt í Spákonuhof á Skagaströnd. Næst var ekið yfir Þverárfjall og síðan eins og leið liggur til Siglufjarðar þar sem
drukkið var kaffi. Að því loknu var keyrt til Akureyrar á ný.