- 27 stk.
- 27.06.2022
Hin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga var farin fimmtudaginn 23. júní sl. Í ár var farið út í Hrísey. Ekið var um eyjuna og hún skoðuð, m.a. var farið í Hús Hákarla Jörundar. Hádegisverður var snæddur í íþróttahúsinu undir ljúfum tónum ungs harmonikkuspilara. Að því loknu var siglt í land á ný og ekið um Svarfaðardal. Að lokum var farið í kaffihlaðborð í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.