- 36 stk.
- 01.05.2023
Fjölmenni safnaðist saman á Akureyri í dag til að taka þátt í kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir í tilefni af 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks.
Kjörorð dagsins eru "RÉTTLÆTI, JÖFNUÐUR, VELFERÐ." Gengið var frá Alþýðuhúsinu, við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar, gegnum miðbæinn að Ráðhústorgi og svo niður í Menningarhúsið HOF, þar sem fram fór hátíðardagskrá í tilefni dagsins. Kristín Konráðsdóttir, félagi í Sameyki, flutti ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna við Eyjafjörð og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, flutti hátíðarræðu dagsins. Auk þess var boðið upp á skemmtiatriði. Bryndís Ásmundsdóttir stýrði dagskránni og söng nokkur vel valin lög og félagar í Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri mættu á svæðið og tók tvö skemmtileg dans og söngatriði úr söngleiknum Footloose sem þau settu nýlega á svið. Í lok dagskrár tóku þau svo undir með Bryndísi og þéttsetnum sal af fólki þegar Maístjarnan var sungin. Að dagskrá lokinni var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðaborð í Menningarhúsinu HOFI.