Vitundarvakningin Hugsum um: Höfuð herðar hné og tær við vinnu.

VIRK og Vinnueftirlitið standa að vitundarvakningunni Hugsum um: Höfuð herðar hné og tær við vinnu.

Nú þegar haustar fer atvinnulífið á fullt og því mikilvægt að allt starfsfólk leggist á eitt við að byggja upp heilbrigða vinnustaðamenningu, en hún leggur grunn að öryggi og vellíðan starfsfólks. Ekki er hvað síst mikilvægt að huga að ungu og nýju starfsfólki.

Horfum á heildarmyndina og hugum að þáttum sem hafa áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Markmiðið er að öll komi heil heim.

 Sjá myndband um vitundarvakninguna

Kynntu þér málið á hhht.is