Á vef VIRK segir að í könnun sem EMC Rannsóknir gerðu fyrir VIRK kemur fram að Það má ekkert lengur auglýsingin hefur vakið mikla athygli og vakið fólk til umhugsunar um kynferðislega áreitni á vinnustöðum, nærri 9 af hverjum tíu aðspurðra telja að hún veki athygli á mikilvægu málefni
Niðurstöður könnunarinnar sýna að 87% svarenda höfðu séð auglýsinguna og að þrír af hverjum fjórum líkar hún vel. 73% aðspurðra sögðu að auglýsingin veki sig til umhugsunar um mikilvægi marka og 72% telja hana líklega til að hafa jákvæð áhrif á vinnustöðum. 45% aðspurðra höfðu rætt auglýsinguna eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum við fólk eftir að hafa séð auglýsinguna.
Það má ekkert lengur auglýsingin er hryggjarstykkið í vitundarvakningu um kynferðislega áreitni á vinnustöðum sem VIRK stendur fyrir nú á haustdögum í samstarfi við auglýsingastofuna Hvíta húsið.
Markmið vitundarvakningarinnar er að beina sjónum að þessu þjóðfélgsmeini, vekja upp umræðu og vísa fólki inn á gagnlegt efni og upplýsingar á velvirk.is.
Brýnt er að efla þekkingu og þjálfun stjórnenda þegar kemur að kynferðislegri áreitni á vinnustað - en einnig að uppræta þá meðvirkni og menningu sem gerir lítið úr og þaggar í þeim sem krefjast breytinga.
Sjá könnun EMC Rannsókna í heild sinni hér.