Gott samstarf atvinnulífstengla VIRK við fyrirtæki og stofnanir er grundvöllur farsællar atvinnutengingar.
Atvinnutenging VIRK er í samstarfi við hundruð fyrirtækja og stofnana varðandi aðstoð við einstaklinga sem eru að ljúka starfsendurhæfingu og vilja stíga skrefin aftur út á vinnumarkaðinn. Samstarf við fyrirtæki og stofnanir gengur vel og viðtökur eru góðar - dýrmæt tækifæri hafa orðið til fyrir einstaklinga í atvinnutengingu.
Á ársfundi VIRK 2023 var viðurkenningin VIRKT fyrirtæki veitt í fyrsta sinn til fyrirtækja sem sinnt hafa samstarfinu við VIRK sérlega vel og sýnt samfélagslega ábyrgð - og þannig hvatt önnur fyrirtæki til góðra verka. 13 fyrirtæki voru tilnefnd og Össur Iceland og Vista verkfræðistofa hlutu viðurkenninguna VIRKT fyrirtæki 2023.
Að þessu sinni hljóta 15 fyrirtæki og stofnanir tilnefningu og á ársfundi VIRK 2024 þann 29. apríl verður tveimur þeirra veitt viðurkenningin VIRKT fyrirtæki 2024.
Sjá nánar á vef VIRK.