VIRK | Úrræði – Markviss endurkoma til vinnu

Ásta Sölvadóttir, sviðsstjóri hjá VIRK
Ásta Sölvadóttir, sviðsstjóri hjá VIRK

Í ársriti VIRK 2023, sem finna má rafrænt á  vef VIRK með fyrri ársritum, má finna greinargóðar upplýsingar um starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og árangur, fjölbreyttar greinar um starfsendurhæfingu og tengd viðfangsefni, viðtöl við ráðgjafa og atvinnulífstengla VIRK, viðtöl við þjónustuþega sem lokið hafa starfsendurhæfingu, viðtal við stjórnenda úr atvinnulífu og viðtöl við þjónustuaðila VIRK.

Hér má finna grein þar sem Ásta Sölvadóttir, sviðsstjóri hjá VIRK, fjallar um að markvissa endurkomu til vinnu.

VIRK ráðgjafar í Eyjafirði
Fjórir ráðgjafar eru starfandi fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaganna í Eyjafirði; Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Katla, Kristín og Nicole. Ráðgjafar VIRK eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu, og hafa aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 460 3600. 

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík einu sinni í viku.
  • Kristín er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð einu sinnu í viku.

Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is