VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði í streymi miðvikudaginn 16. mars kl. 8.30-10.00.
Heilsueflandi forysta og vellíðan í starfi er yfirskrift fundarins og fyrirlesari er Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu.
Streymið af fundinum verður aðgengilegt á vefsíðum stofnanna - sjá viðburðinn á Facebook.
Morgunfundurinn er sá níundi í fundaröðinni um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.
Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.