VIRK á ekki að vera leyndarmál

„Þegar þarna var komið sögu var ég svo illa haldinn að ég var tilbúinn til að gera hvað sem var. Og hugarfar mitt hvað snerti kulnun var orðið opnara vegna umræðunnar á þessum tíma. Ég ákvað strax að halda því ekki leyndu að ég leitaði til VIRK. Ég tala um þetta feimnislaust. VIRK á ekki að vera leyndamál,“ segir Jón Þór Jónsson um reynslu sína og árangur í starfsendurhæfingu í viðtali við ársrit VIRK. 

„Heilsa mín er nokkuð góð eins og er. Mér líkaði þjónustan hjá VIRK frábærlega. Ráðgjafinn stýrði þessu vel. Ég hefði örugglega verið miklu lengur frá vinnumarkaði ef ég hefði ekki notið þeirrar þjónustu. Og námskeiðin sem ég sótti á vegum VIRK hjálpuðu mér afskaplega mikið. Ég er þó enn ákafur og hvatvís. Ég þarf því stöðugt að hafa varan á og halda í horfinu.“ 

Sjá viðtalið á vefsíðu VIRK. 

VIRK ráðgjafar í Eyjafirði

Fjórir ráðgjafar eru starfandi fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaganna í Eyjafirði; Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Katla, Kristín og Nicole. Ráðgjafar VIRK eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu, og hafa aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 460 3600. 

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík einu sinni í viku.
  • Kristín er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð einu sinnu í viku.

Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is