Á vef SGS segir að í kjarasamningum SA og SGS sem gilda frá 1. apríl 2019 var samþykkt sérstök bókun um afköst í tímamældri ákvæðisvinnu og að yrði skipaður sérstakur starfshópur til að skoða afköstin. Í bókuninni var gert ráð fyrir að Ríkissáttasemjari boðaði til fyrsta fundar og verkstýrði viðræðum og átti þessari vinnu að vera lokið í maí 2020.
Þrátt fyrir marga fundi hefur lítið þokast í þessum málum. SGS sendi bréf til Vinnueftirlitsins þar sem óskað var eftir áliti þess á því hvort ákvæði um vinnuhraða standist áhættumat og lög um vinnuvernd.
Í svari Vinnueftirlitsins kemur eftirfarandi fram með skýrum hætti;
,,Að teknu tilliti til þess sem áður hefur komið fram þá telur Vinnueftirlitið að mælikvarði um mismunandi vinnuhraða sem fram kemur í fylgiskjali I við bókun við kjarasamning Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins frá 1. apríl 2019, sé ekki í samræmi við markmið vinnuverndarlaganna og góða vinnuvernd. Mælt er með því að þegar mat er lagt á álag starfsfólks í vinnu verði verkefi og vinnuaðstæður starfsfólks tekið til sérstakar skoðunar.“
Ljóst er að í komandi kjarasamningum mun þetta álit Vinnueftirlitsins skipta miklu máli í viðræðum um kaup og kjör starfsfólks í ræstingum.