Vinnueftirlitið - umsóknir um styrki í Vinnuverndarsjóð

Vert er að benda á að Vinnueftirlitið óskar eftir umsóknum um styrki í Vinnuverndarsjóð. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði.

Vinnuverndarsjóður er samstarfsverkefni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Honum er ætlað að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði. Fyrstu styrkir úr sjóðnum voru veittir árið 2024.

Frestur til að skila inn umsóknum í sjóðinn er til fimmtudagsins 27. mars næstkomandi. Stefnt er að úthlutun styrkja í apríl 2025.

 

Nánari upplýsingar má finna hér á heimasíðu Vinnueftirlitsins.