Vinningshafar úr jólablaði Einingar-Iðju

Búið er að draga úr fjölmörgum réttum innsendum lausnum verðlaunagetraunar og verðlaunakrossgátu sem birtust í jólablaði Einingar-Iðju í desember sl.

Rétt svar í verðlaunagetrauninni, þar sem spurt var: Hvað heitir svæðisfulltrúi félagsins á Dalvík? var svar númer 5: Sigríður Jósepsdóttir.

Rétt lausnarorð í verðlaunakrossgátunni var: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.

Á myndinni má sjá Vilhelm Adolfsson, ritara félagsins, sem var fenginn til að draga út nöfn heppinna vinningshafa en fjölmargir sendu inn réttar lausnir. Með honum á myndinni er Sigrún Lárusdóttir skrifstofustjóri sem sá til þess að allt færi rétt. Nöfnin sem Vilhelm dró eru eftirfarandi:

Krossgáta
1. verðlaun. Gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 20.000.
     Ellen Erlingsdóttir, Akureyri

2. verðlaun. Gjafabréf frá Strikinu að verðmæti kr. 10.000.
     Ingveldur Gunnarsdóttir, Akureyri

Getraun
1. verðlaun. Gjafabréf frá Strikinu að verðmæti kr. 10.000.
     Svandís Geirsdóttir, Akureyri

2. verðlaun. Gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 10.000.
     Brynja Ragnarsdóttir, Akureyri

Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju. Haft verður samband við þá við fyrsta hentugleika.