Vinningshafar af aðalfundi - til hamingju

Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju. F.v.: Linda Theódóra Tómasdóttir, Maria Myrna Lenare…
Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju. F.v.: Linda Theódóra Tómasdóttir, Maria Myrna Lenares Cuestas, Sigurbjörg G. Kristjánsdóttir og Jón Álfgeir Sigurðarson.

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var sl. mánudag var efnt til happdrættis.  Miðar með nöfnum allra félaga sem mættu á fundinn voru settir í pott og svo voru nöfn fjögurra heppinna Einingar-Iðjufélaga dregin út. 

Nöfn eftirfarandi félagsmanna voru dregin úr pottinum.

  • Sigurbjörg G. Kristjánsdóttir fékk gjafabréf að verðmæti kr. 30.000 hjá Menningarfélagi Akureyrar sem gildir á alla viðburði í Menningarhúsinu Hofi og Samkomuhúsinu.

  • Jón Álfgeir Sigurðarson, Linda Theódóra Tómasdóttir og Maria Myrna Lenares Cuestas fengu helgardvöl í orlofshúsi félagsins á Illugastöðum, Húsafelli, Svignaskarði eða Tjarnargerði  að vetri til.