Viltu eignast miða á vortónleika Karlakórs Akureyrar-Geysis?

Félagið ákvað að bjóða félagsmönnum á tónleika í tilefni verkalýðsdagsins. Um er að ræða vortónleika Karlakórs Akureyrar-Geysis sem verða í Glerárkirkju þann 1. maí nk. kl. 17:00.

Í allt er um að ræða 50 miða. Nú gildir fyrstur hefur samband, fyrstur fær. Hver félagsmaður getur mest fengið tvo miða.

Áhugasamir geta kíkt við á skrifstofuna á Akureyri eða haft samband í síma. 460 3600.