Viðhorfskönnun meðal dvalargesta í orlofshúsum og íbúðum

Fyrr í morgun voru sendar út tvær rafrænar kannanir til félagsmanna, sem voru í íbúð eða í orlofshúsi sl. sumar, þar sem verið er að kanna upplifun þeirra á viðkomandi stað. Svör sem fást munu hjálpa til við að vita viðhorf félagsmanna til þeirra orlofshúsakosta sem í boði eru með það fyrir augum að bæta starfsemina.

Mjög góð svörun hefur verið síðustu ár og hafa margar ábendingar og hrós borist til félagsins og því var ákveðið að vera með eins könnun í ár. Við vonum að félagsmenn, sem fengu tölvupóst í morgun með slóð á kannanirnar, gefi sér sem fyrst nokkrar mínútur til að svara.

Hægt er að svara þessum könnunum til og með sunnudagsins 15. október nk.

Öll svör eru órekjanleg, ekki er óskað eftir persónuupplýsingum í þessari könnun.