Verkföll BSRB

Víðtækar verkfallsaðgerðir BSRB í 29 sveitarfélögum hófust fyrr í morgun.

Eining-Iðja hefur sent erindi á trúnaðarmenn sveitarfélaga um að félagsmenn gangi ekki í störf verkfallsfólks og bæti ekki á sig verkefnum þeirra eða taki þær vaktir sem BSRB félagar voru skráðir á.

Við hvetjum alla félagsmenn okkar til að virða verkfall BSRB félaganna og ganga ekki í störf þeirra.