VelVirk - Jólin 2023

Aðventan er yndisleg en jólastússið getur verið streituvaldandi, það þekkjum við flest. Á velvirk.is finnur þú nokkur gagnleg ráð til að vinna gegn jólastressinu og gera aðventuna ljúfari.

Jólin eru tími gleði og eftirvæntingar hjá flestum og tengjast dýrmætum minningum úr æsku. Aðdragandi þeirra er oftast ljúfur, en þau eru jafnframt býsna stór viðburður og krefjast undirbúnings. Foreldrar með ung börn hafa mikið á sinni könnu, sérstök dagskrá tengd skólanum, föndur, bakstur og aðstoð við jólasveininn svo nokkuð sé nefnt.

En það er ekki nóg að sinna gjafainnkaupum, hreingerningu, skreytingum og flókinni matargerð á heimilinu, heldur er óvenju mikið um að vera í félagslífinu, margir fara á tónleika eða aðra listviðburði, í heimsóknir og hlaðborð með vinum, eða útbúa konfekt og laufabrauð með stórfjölskyldunni. Jólin teygja sig líka inn á flesta vinnustaði, það þarf að skreyta, kaupa leynivinagjafir og skrítnar peysur, sækja jólahlaðborð og aðrar uppákomur. 

Flest af ofangreindu er skemmtilegt og gefandi, en oft verður þetta aðeins of mikið og við finnum fyrir streitu sem stigmagnast fram yfir jóladag. 

Á heimasíðunni velvirk.is má finna nokkur ráð sem gætu komið að gagni fyrir jólin.