Vel tekið í nýjar Mínar síður

Nýlega tók félagið í notkun nýtt og betra félaga- og orlofskerfi; Félagakerfið Tótal. Jafnframt var opnað fyrir nýjar Mínar síður félagsins sem eru mjög notendavænar og byggjast upp á persónublaði viðkomandi félagsmanns. 

Vel gekk að færa til gögn á milli kerfa og virkar nýja kerfið mjög vel. Enn er verið að vinna í ýmsum stillingum og því má búast við að eitthvað geti hikstað smá á næstunni svona rétt á meðan verið er að fínstilla. Í gær kom upp smá samskiptavesen milli nýs bókhaldskerfis, sem einnig var verið að taka í notkun, og bankans en það er komið í lag. Við þökkum félagsmönnum þolinmæðina og bendum á að ef eitthvað virðist ekki virka eins og það á að gera þá er um að gera að hafa samband. 

Fjölmargt félagsfólk hafa haft samband og líst yfir mikili ánægju með nýjar Mínar síður og eru sammála um hve einfalt er að sjá sínar upplýsingar og vinna í persónublaðinu sínu.

Persónublað
Eins og segir hér að framan á hver félagsmaður nú sitt eigið persónublað á Mínum síðum sem veitir góða yfirsýn yfir stöðu viðkomandi. Á því má finna yfirlit yfir félagsgjöld (sem endurspegla heildarlaun), skipt eftir mánuðum og atvinnurekendum.   Jafnframt má sjá réttindi í sjóðum og hvernig þau hafa verið nýtt. Í flestum tilvikum er hægt að sækja ítarlegri upplýsingar um hvert atriði. Á því má einnig skoða orlofskosti, panta og ganga frá greiðslu og sækja um styrki sem eru í boði, bæði í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði. 

Starfsfólk félagsins hvetur félagsfólk til að fara inn á Mínar síður,  skoða þær og uppfæra ef þarf upplýsingar um viðkomandi, eins og síma, netfang og bankaupplýsingar. Ef netfangið er rétt getur verið að það þurfi að staðfesta það. Þá hvetur félagið til þess að skrá starfsstöð ef viðkomandi starfar hjá ríkinu, sveitarfélagi eðahjá  fyritæki með margar starfsstöðvar. Á mínum síðum félagsins er auðvelt að skrá starfsstöð og einnig að tilkynna um breytingu á starfsmannaflokk og jafnvel skrá starfsheiti.

Leiðbeiningar um nýjar Mínar síður félagsins