ASÍ og Samtök Atvinnulífsins héldu í gær vel sótta ráðstefnu um mansal á Íslandi í Hörpu. Þrátt fyrir að íslenskur vinnumarkaður sé almennt vel skipulagður hafa undanfarið komið upp mál sem valda verulegum áhyggjum og nauðsynlegt er að staldra við. Fulltrúar úr verkalýðshreyfingunni, atvinnulífinu, fræðasamfélaginu og frá opinberum stofnunum tóku virkan þátt með kynningum og umræðum um þá meinsemd sem vinnumansal er.
Horfa má á upptöku af erindum og umræðum á ráðstefnunni hér.
Á ráðstefnunni var farið yfir stöðu mála, hvaða aðstæður ýta undir vinnumansal, hvernig hægt er að greina tilvik og hvaða úrræði gætu gagnast best til að uppræta vinnumalsal. Gestir frá Finnlandi fóru yfir reynslu Finna af málaflokknum, en Finnar hafa náð eftirtektarverðum árangri í baráttunni gegn vinnumansali.
Í tengslum við fundinn sendu Alþýðusamband Íslands og Samtök Atvinnulífsins frá sér sameiginlega yfirlýsingu um fjölbreytt úrræði í tengslum við málaflokkinn. Þar er m.a. kallað eftir skýrum og góðum ferlum sem taka á málum sem kunna að koma upp, úrræði sem grípa vel þolendur og að unnið sé að því að auka þekkingu og greiningargetu á vandanum.