Eining-Iðja tekur undir með Eflingu stéttarfélagi sem hefur verið að vara starfsfólk í veitingageiranum við gervistéttarfélaginu „Virðingu“.
Í tilkynningu frá Eflingu segir m.a. að „Virðing“ er ekki raunverulegt stéttarfélag heldur svikamylla rekin af atvinnurekendum í þeim tilgangi að skerða laun og réttindi starfsfólks. Efling hefur staðfesta vitneskju um tilvik þar sem starfsfólki hefur verið sagt af atvinnurekanda að það eigi að starfa undir kjarasamningi Virðingar við atvinnurekendafélagið SVEIT. Tilgangur þess er að fá starfsfólk til að samþykkja lægri laun og verri kjör.
Eining-Iðja biður allt starfsfólk í veitingageiranum sem hefur fengið boð frá sínum atvinnurekanda um að taka þátt í þessum svikum að hafa samband við félagið án tafar með því að fylla út þetta eyðublað
Atvinnurekendur þóttust vera verkafólk þegar þeir fengu ekki kröfum sínum framgengt við Eflingu
Á heimasíðu Eflingar segir að atvinnurekendur hafi þóst vera verkafólk þegar þeir fengu ekki kröfum sínum framgengt við Eflingu. SVEIT hefur á liðnum árum barist fyrir gerð kjarasamnings þar sem laun starfsfólks á veitingahúsum verði lækkuð miðað við núgildandi lögvarin kjör í kjarasamningi Eflingar við Samtök atvinnulífsins. SVEIT reyndi í fyrstu að sannfæra Eflingu um að ganga til kjaraviðræðna við sig á þeim forsendum, en því hafnaði félagið. Dró SVEIT þá Eflingu fyrir Félagsdóm, sem úrskurðaði að Eflingu bæri engin skylda til að semja við SVEIT og staðfesti jafnframt að ákvæði kjarasamnings Eflingar við SA væru lögbundin lágmarkskjör í geiranum. Í stjórn Virðingar sitja þrír einstaklingar, þar af tveir sem koma beint að rekstri veitingastaða sem eigendur eða stjórnarmenn. Ekki kemur á óvart að þeir veitingastaðir eru einmitt á félagaskrá SVEIT.
Ótal kjaraskerðingar
Kjarasamningur Virðingar við SVEIT felur í sér verulegar skerðingar á launum og réttindum starfsfólks, þar á meðal:
Þetta eru einungis nokkur dæmi af ótal kjaraskerðingum sem samningurinn felur í sér.
Eining-Iðja mun eins og Efling aðstoða allt verkafólk sem eru fórnarlömb þessarar svikamyllu, óháð því hvort þau hafa skrifað undir ráðningarsamning þar sem vísað er til gervi-kjarasamnings Virðingar og SVEIT. Verkafólk þarf ekki að sætta sig við að vera blekkt á þennan hátt, sama hvað atvinnurekandi kann að segja þeim.
Félögin munu grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að koma í veg fyrir svik og blekkingar SVEIT og Virðingar gegn starfsfólki veitingahúsa.