Útvíkkaður formannafundur SGS

Dagana 30. og 31. maí nk. mun Starfsgreinasambandið halda formannafund í Bolungarvík. Um er að ræða útvíkkaðan fund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi. Anna Júlíusdóttir, formaður félagsins, og Tryggvi Jóhannsson varaformaður, munu sitja fundinn fyrir hönd félagsins.

Á fundinum verða ýmis mál tekin fyrir. M.a. staða og horfur í efnahagsmálum, staða kjaramála, starfið framundan og margt fleira.