Útvíkkaður formannafundur SGS

Dagana 7. og 8. september 2023 mun Starfsgreinasambandið halda formannafund á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ. Um er að ræða útvíkkaðan fund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi. Tryggvi Jóhannsson, varaformaður Einingar-Iðju, og Gunnar Magnússon, ritari félagsins, munu sitja fundinn fyrir hönd félagsins.

Á dagskrá fundarins er m.a. kynning á starfsmatskerfinu, kynning á niðurstöðum könnunar Vörðu og erindi frá nýskipuðum ríkissáttasemjara. Þá verða að vanda umræður um stöðuna í kjaramálum auk fleiri dagskrárliða.