Ársfundur VIRK var haldinn 26. apríl sl. í salnum Háteigi á Grand Hótel Reykjavík. Ársfundurinn var vel sóttur og almenn ánægja ríkti með að geta hist í raunheimum á ársfundi eftir tvo síðastliðnu ársfundi VIRK sem haldnir voru á netinu vegna samgöngutakmarkana. Upptökur með innleggjum úr fyrri hluta ársfundarins má sjá hér að neðan.
Dagskrá
Ávarp
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra - sjá upptöku hér.
Starfsemi VIRK
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK - sjá upptöku hér.
Reynslusaga þjónustuþega VIRK
Gunnlaugur Hólm Torfason - sjá upptöku hér.
Heilsa, lífskjör og félagslegur jöfnuður
Svandís Nína Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá VIRK - sjá upptöku hér.
Reynslusaga stjórnanda úr atvinnulífinu
Berglind Helgadóttir, verkefnastjóri á Mönnunar og starfsmannaumhverfisdeild Landspítalans - sjá upptöku hér.
Kaffihlé
Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt skipulagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur VIRK 2021 kynntur og borinn upp til samþykktar
- Tilkynning um skipan stjórnar
- Kosning endurskoðenda
- Önnur mál