776 umsóknir um orlofskosti sumarsins

Föstudaginn 21. apríl sl. rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Orlof að eigin vali.”  Til félagsins bárust 776 umsóknir og er vinnu við að fara yfir þær lokið og búið að úthluta. Búið er að senda tölvupóst til þeirra félagsmanna sem að sóttu um orlofskost sumarið 2023. Þeir félagsmenn sem að fengu samþykkt hafa tíma til og með 2. maí nk. til að greiða leiguna. Ef ekki er búið að greiða 2. maí er litið svo á að viðkomandi ætli ekki að nýta sér orlofskostinn og dettur því pöntunin út.

Þeir sem fengu úthlutað þurfa að skrá sig inn á orlofsvef félagsins til að greiða, þar á forsíðu má finna hlekkinn Hér getur þú skoðað og greitt fyrir þínar umsóknir

Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra. Eins og áður segir bárust 776 umsóknir, 610 fengu samþykkt sitt val, þar af voru 300 vegna orlofs að eigin vali. 

  • 5. maí 2023 kl. 10:00 verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur.  

Eins og staðan er í dag eru: 

  • 17 vikur lausar í júní
  • 3 vikur lausar í júlí
  • 6 vikur lausar í ágúst

Punktakerfi
Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

ATH! Við afbókun fæst inneign. sem hægt er að nýta síðar. Einungis er endurgreitt vegna veikinda, andláts eða vegna óveðurs/ófærðar skv. viðvörun Veðurstofu Íslands.

Frádráttur orlofspunkta er mismunandi eftir tímabilum og eftir því hvað er leigt. Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 24 punktar í frádrátt:
    • Fyrir fyrstu tvær og síðustu sumarvikuna.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir aðrar sumarvikur