Í dag býður Eining-Iðja upp á tvo kynningarfundi um nýjan kjarasamning milli Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem skrifað var undir 12. september sl. Fundirnir verða á Akureyri og á Grenivík. Í gær var boðið upp á fundi í Fjallabyggð og á Dalvík
Við hvetjum alla félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélagi til að mæta og kynna sér samninginn og auðvitað taka afstöðu með því að taka þátt í atkvæðagreiðslunni um hann. Atkvæðagreiðslan er rafræn, en henni mun ljúka kl. 9:00 þriðjudaginn 26. september 2023. Atkvæðagreiðslan er rafræn, smellið hér til að kjósa.