Tryggvi hóf störf í dag

Tryggvi Jóhannsson hóf störf hjá félaginu í dag sem starfandi varaformaður Einingar-Iðju. 

Tryggvi er formaður Matvæla- og þjónustudeildar félagsins og eftir að ljóst varð að Anna yrði formaður Einingar-Iðju ákvað  aðalstjórn félagsins að hann yrði starfandi varaformaður í hennar stað út þetta starfsár.

Hann verður með aðsetur á skrifstofunni á Akureyri og er með netfangið tryggvi(hjá)ein.is 

Eining-Iðja býður Tryggva velkominn í starfsmannahópinn.