Nú stendur yfir trúnaðarmannanámskeið, 1. hluti, í sal félagsins á Akureyri og taka 13 trúnaðarmenn þátt í því, 8 frá Einingu-Iðju og 5 frá FVSA. Námskeiðið hófst í morgun og stendur yfir í þrjá daga. Leiðbeinandi í dag er Sigurlaug Gröndal en næstu tvo daga mun Guðrún Edda Baldursdóttir sjá um kennsluna, báðar eru þær frá Félagsmálaskóla Alþýðu. Á námskeiðinu er farið yfir hvert hlutverk stéttafélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði er. Einnig er farið í hvert hlutverk trúnaðarmanns er á vinnustað og hvað hann á að gera og hvað ekki.
Stiklur um efnið:
- Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði
- Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna.
- Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera?
- Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum
- Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð.
- Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim.
- Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum
- Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra.
- Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.