Trúnaðarmannanámskeið með nýju sniði

Mynd tekin á trúnaðarmannanámskeiði. Trúnaðarmenn Einingar-Iðju eru mikilvægir hlekkir í starfi féla…
Mynd tekin á trúnaðarmannanámskeiði. Trúnaðarmenn Einingar-Iðju eru mikilvægir hlekkir í starfi félagsins. Samkvæmt samningum á að vera trúnaðarmaður á öllum vinnustöðum sem hafa 5 eða fleiri félagsmenn. Þar sem starfa fleiri en 50 eiga að vera 2 trúnaðarmenn.

Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Sex námskeiðanna eru kenndir í fjarnámi en hin sex í staðnámi.

Staðnám verður nú einn + einn dagur, mest tveir dagar í senn (í stað þriggja daga áður), en hvor dagur er eitt námskeið. Það þarf að skrá sig á báða dagana ef viðkomandi trúnaðarmaður ætlar að sitja bæði námskeiðin.

Þessi breyting á námskeiðunum er m.a. tilkomin vegna niðurstöðu vinnu á tæplega 20 vinnufundum með trúnaðarmönnum félagsins fyrr í vetur þar sem verið var að fara yfir ýmis mál, m.a. trúnaðarmannanámskeiðin. Á þeim fundum var einnig rætt um endurmenntun trúnaðarmanna og því var tekin sú ákvörðun að allir trúnaðarmenn geti skráð sig á námskeið, þó svo að einhver hafi tekið einhvern hluta eða námskeið áður.

Hægt er að taka námskeiðin í hvaða röð sem er, það eina sem félagið fer fram á að þeir trúnaðarmenn sem ekki hafa setið námskeið byrji á að taka námskeiðin Trúnaðarmaður, starf hans og staða og Starfsemi félagsins, kjarasamningar og sjóðir. Þessi námskeið verða einmitt kennt í staðnámi í sal félagsins á Akureyri 1. og 2. febrúar nk.

Litirnir á námskeiðunum eru einungis til að auðvelda trúnaðarmönnum að sjá hvaða námskeið var í hvaða hluta til að átta sig betur á hvað þeir eru búnir með.

     ----->     

Á næstunni verða haldin eftirfarandi trúnaðarmannanámskeið.

Námskeiðin fara fram í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14 á Akureyri, þegar um staðnám er að ræða.

Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.

Félagsmálaskóli alþýðu sér um námskeiðin, en hann er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. MFA, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, fer með rekstur og málefni skólans. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks.

Námskrá Félagsmálaskóla alþýðu