Vert er að benda trúnaðarmönnum félagsins á að búið er að raða niður trúnaðarmannanámskeiðum næsta vetur, þ.e. á haustönn.
Er nær dregur námskeiðum verða send bréf á þá trúnaðarmenn sem geta skrá sig á viðkomandi námskeið. Námskeiðin, sem hvert um sig stendur yfir í þrjá daga, fara fram í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14 á Akureyri.
Trúnaðarmenn Einingar-Iðju eru mikilvægir hlekkir í starfi félagsins. Samkvæmt samningum á að vera trúnaðarmaður á öllum vinnustöðum sem hafa 5 eða fleiri félagsmenn. Þar sem starfa fleiri en 50 eiga að vera 2 trúnaðarmenn.
Við kosningu öðlast trúnaðarmaður um leið sérstaka lagalega vernd í starfi sínu, fær umboð félagsins til að fara með mál annarra og verður fulltrúi þess á vinnustaðnum. Meginhlutverk trúnaðarmanna er að gæta þess að lög og samningar séu haldnir á vinnustaðnum og vera tengiliður starfsmanna við stéttarfélagið.
Trúnaðarmenn eiga samningsbundinn rétt til að sækja námskeið án launaskerðingar en þurfa að sjálfsögðu að sækja námskeiðin í samráði við yfirmann sinn.
Haustönn 2023
Ef það er ekki trúnaðarmaður á þínum vinnustað hafðu þá samband við skrifstofu Einingar-Iðju og við setjum upp kosningu til að kjósa trúnaðarmann.