Tölva fyrir félagsmenn í afgreiðslunni á Akureyri

Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskr…
Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskráninguna þá er starfsfólk félagsins boðið og búið að aðstoða ykkur. Skoðið vel og lagið ef þarf bankaupplýsingar, símanúmer og netföng.

Við hvetjum félagsmenn til að senda inn rafrænar umsóknir í sjúkrasjóð og fræðslusjóð í gegnum Mínar síður félagsins. Þar má jafnframt skoðað og panta orlofshús eða íbúðir sem nú eru í boði hjá félaginu.

Vakin er athygli á því að félagsmenn hafa aðgang að tölvu í afgreiðslunni á Akureyri þar sem þeir geta sent inn rafrænar umsóknir og skoðað og pantað hús og íbúðir. Starfsmenn félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð eru einnig tillbúnar til að aðstoða þá sem þangað koma að senda inn rafrænar umsóknir til félagsins eða panta orlofskosti félagsins.

Nánar um Mínar síður félagsins