1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Árleg áminning um mátt samstöðu og nauðsyn áframhaldandi baráttu fyrir réttlæti og mannsæmandi lífskjörum fyrir alla. Eining-Iðja sendir félagsmönnum sem og landsmönnum öllum hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins.
Það verður dagskrá í tilefni dagsins á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum.
Dagskrá á Akureyri
Kröfuganga mánudaginn 1. maí
13:30 - Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 - Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
Bryndís Ásmundsdóttir stýrir dagskránni og syngur vel valin lög.
Söngur og gleði með góðum gestum úr Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri.
Dagskrá í Fjallabyggð