Til hamingju með daginn!

Til hamingju með daginn! Það verður dagskrá í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum sams…
Til hamingju með daginn! Það verður dagskrá í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum.

1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Árleg áminning um mátt samstöðu og nauðsyn áframhaldandi baráttu fyrir réttlæti og mannsæmandi lífskjörum fyrir alla. Eining-Iðja sendir félagsmönnum sem og landsmönnum öllum hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins.

Yfirskrift 1. maí í ár er Við vinnum!

Það verður dagskrá í tilefni dagsins á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum. 

Hátíðarhöld á Akureyri 1. maí 2022

Kröfuganga
    Kl. 13:30 Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
    Kl. 14:00 Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar 

Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
    Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
       Finnur Víkingsson, formaður Rafiðnaðarfélags Norðurlands

    Hátíðarræða
       Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ                           

    Skemmtidagskrá
       Vilhjálmur Bragason stýrir dagskránni. Söngur og gleði með góðum gestum úr Hárinu ásamt Ívari Helgasyni. 
                                               
    Kaffiveitingar að lokinni dagskrá


Dagskrá 1. maí 2022 í Fjallabyggð

  • Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00
  • Ávarp frá 1. maí nefnd stéttarfélaganna   
  • Kaffiveitingar