Þrjú sæmd gullmerki félagsins

Á myndinni má sjá gullmerkjahafana ásamt formanni og varaformanni félagsins. F.v.:Björn Snæbjörnsson…
Á myndinni má sjá gullmerkjahafana ásamt formanni og varaformanni félagsins. F.v.:Björn Snæbjörnsson, Guðrún, Baldvin, Hallfríður og Anna Júlíusdóttir.

Á aðalfundi félagsins sem fram fór í síðustu viku voru þrír félagar sæmdir gullmerki félagsins. Þetta voru þau Guðrún Þorbjarnardóttir, Hallfríður Hallsdóttir og Baldvin Hreinn Eiðsson. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, sagði við það tilefni að þau sem hlutu viðurkenningu hafi unnið sitt starf af trúmennsku og óeigingirni. „Það er gaman fyrir félagið að geta sýnt því fólki sem starfað hefur lengi fyrir félagið og ekki síst sína samstarfsfélaga smá þakklætisvott fyrir hið mikla starf sem þau hafa innt af hendi,” sagði Björn. 

Hér fyrir neðan má sjá hvað Björn hafði um þau að segja áður en hann sæmdi þau gullmerkinu. 

Guðrún Þorbjarnardóttir
Er svæðisfulltrúi svæðisráðs Hríseyjar- og Dalvíkurbyggðar og  á sæti í stjórn félagsins og er vararitari hennar. Hún hefur verið trúnaðarmaður á sínum vinnustað er í samninganefnd og trúnaðarráðinu ásamt því að vera í nefndum og ráðum innan okkar raða. Hún er tengiliður félagsins við félagsmenn okkar í Hrísey. 

Hallfríður Hallsdóttir
Hún hefur verið trúnaðarmaður á sínum vinnustað, í samninganefnd og er í trúnaðarráði félagsins,  ásamt því að vera í nefndum og ráðum innan okkar raða. Hún hefur alltaf verið boðin og búin til að taka að sér verkefni fyrir félagið ef eftir því  hefur verið leitað. 

Baldvin Hreinn Eiðsson
Hann hefur verið lengi trúnaðarmaður á sínum vinnustað hefur verið í samninganefnd og er í trúnaðarráði félagsins  ásamt því að vera í nefndum innan okkar raða. Hann hefur haft þann stíl sem trúnaðarmaður að vinna að málefnum sinna vinnufélaga með rólegheitum og yfirvegun sem hefur skilað góðum árangri fyrir þá.