Fundirnir verða allir rafrænir, þrjú kvöld í næstu viku.
Félagið er búið að boða trúnaðarmenn félagsins og stjórnir deilda á þrjá rafræna fundi í næstu viku þar sem umræðuefnið verður um næstu kjarasamninga og áhersluatriði varðandi kröfugerð félagsins. Fundirnir hefjast allir kl. 19:30 og verða í gegnum Microsoft Teams.
- Mánudagur 14. mars
- Fundur með trúnaðarmönnum í Opinberudeild Einingar-Iðju og stjórn deildarinnar
- Þriðjudagur 15. mars
- Fundur með trúnaðarmönnum í Matvæla- og þjónustudeild Einingar-Iðju og stjórn deildarinnar
- Miðvikudagur 16. mars
- Fundur með trúnaðarmönnum í Iðnaðar- og tækjadeild Einingar-Iðju og stjórn deildarinnar