Þjónustukönnun VIRK 2022

Þegar þjónustuþegi lýkur starfsendurhæfingu hjá VIRK þá býðst honum að taka þátt í þjónustukönnun þar sem hann er beðinn um að svara spurningum um þjónustuna og einstaka þætti hennar. Rúmlega helmingur þeirra sem ljúka starfsendurhæfingu svara þjónustukönnuninni.

Hér að neðan má sjá samantekt úr svörum þjónustuþega sem luku starfsendurhæfingu árið 2022.

Almennt telja þjónustuþegarnir að þjónusta VIRK hafi haft mikil áhrif á stöðu þeirra. Við lok þjónustu sé sjálfsmynd þeirra sterkari, starfsgeta meiri og líkamleg og andleg heilsa betri.

9 af hverjum 10 þjónustuþegum VIRK eru ánægðir með starfsendurhæfingarráðgjafann sinn. Þjónustuþegum finnst viðmót ráðgjafanna gott, ráðgjafarnir séu hvetjandi og standi sig vel í að virkja þá til þátttöku.

         

 

 

Þjónustukönnunin birtist fyrst í ársriti VIRK 2023.

*****

VIRK ráðgjafar í Eyjafirði

Fjórir ráðgjafar eru starfandi fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaganna í Eyjafirði; Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Katla, Kristín og Nicole. Ráðgjafar VIRK eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu, og hafa aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 460 3600. 

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík einu sinni í viku.
  • Kristín er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð einu sinnu í viku.

Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is