Takk fyrir blómin

Takk Báran stéttarfélag, fyrir fallega blómvöndinn sem barst á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri fyrr í dag.

Með blómvendinum fylgdi kort þar sem félaginu var þakkað fyrir frábærar móttökur á þingi SGS sem fram fór nýlega á Akureyri. Félagið þakkaði einnig Birni Snæbjörnssyni, formanni félagsins og fyrrum formanni SGS, fyrir hans störf sem formaður Starfsgreinasambands Íslands og gott samstarf.