Sundlaugin á Illugastöðum opnar á morgun

Á innfelldu myndinni má hvernig staðan var á Illugastöðum 4. júní sl.
Á innfelldu myndinni má hvernig staðan var á Illugastöðum 4. júní sl.

Vert er að benda á að á morgun verður sundlaugin á Illugastöðum í Fnjóskadal opnuð og geta allir kíkt þangað í sund í sumar. 

Á Facebook síðu byggðarinnar segir m.a.: "Um helgina, laugardaginn 8. júní og sunnudaginn 9. júní, verður opið frá kl. 13:00 til kl. 16:00 svo tekur við venjulegur opnunartími frá og með mánudeginum 10. júní. Þá verður opið alla dagna nema föstudaga frá kl. 10:30 til 17:30.
Svo er aldrei að vita nema að við tökum einhverja smá útúrdúra í sumar t.d. einhverjar kvöldopnanir eða þema daga/kvöld það verður þá auglýst sérstaklega. Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest í lauginni í sumar 🥰"

Það er því um að gera að vakta síðuna þeirra til að fylgjast með þessum aukaopnunum.

Sundlaugin er staðsett við orlofsbyggðina á Illugastöðum en er öllum opin. Laugin er útilaug og eru þar tveir heitir pottar.

Opnunartími sumarið 2024

  • Laugardaga til fimmtudaga 10:30 - 17:30
  • Lokað á föstudögum.

Gjaldskrá sumarið 2024

  Stakt gjald     10 tíma kort

Börn, 6 - 17 ára

 

400 kr.

 

3.300 kr.

Fullorðnir

 

1.100 kr.

 

7.700 kr.

Aldraðir og öryrkjar

 

500 kr.

 

3.850 kr.