Sumarblað félagsins borið út í dag

Nú er búið að prenta og ganga frá sumarblaði félagsins og mun það berast flestum félagsmönnum og öðrum í dag, miðvikudaginn 5. júlí, en það verður borið út með Dagskránni á öll heimili á félagssvæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum. 

Í blaðinu, sem er 24 síður að stærð, er m.a. fjallað um nýjan heiðursfélaga Einingar-Iðju, nýjan kjarasamning við ríkið, Mínar síður Einingar-Iðju, aðalfund félagsins, rafræn félagsskírteini, ársfund Stapa og margt fleira. 

Blaðið er komið á netið og má lesa það hér, bæði á Pdf eða Flash formi.