Sumarblað félagsins borið út í dag

Nú er búið að prenta og ganga frá sumarblaði félagsins og mun það berast flestum félagsmönnum og öðrum í dag, miðvikudaginn 27. júlí, en það verður borið út með Dagskránni á öll heimili á félagssvæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum. 

Í blaðinu, sem er 20 síður að stærð, er m.a. fjallað um nýjan samning við Nice air sem veitir félagsmönnum afslátt hjá flugfélaginu, aðalfund félagsins, ársfund Stapa, VIRK starfsendurhæfingarsjóð og margt fleira. 

Blaðið er komið á netið og má lesa það hér, bæði á Pdf eða Flash formi.