Styrkur til hjálparstarfs afhentur

Stjórn Einingar-Iðju samþykkti samhljóða á fundi 21. mars sl. að veita Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 700.000 til hjálparstarfs vegna komu flóttafólks frá Úkraínu. 

Í síðustu viku afhenti Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, Ingibjörgu Halldórsdóttur, deildarstjóra Rauða Krossins í Eyjafirði, styrkinn.