Styrkir VIRK 2023 - síðasti umsóknardagur

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni þá er VIRK með opið fyrir umsóknir um styrki til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi. Umsóknarfrestur er til og með dagsins í dag, 15. febrúar 2023.

Veittir eru styrkir til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna einu sinni á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum í dag, 15. febrúar, inn á netfangið styrkir@virk.is.

Aðeins eru teknar til greina umsóknir sem uppfylla allar reglur um styrki VIRK. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og umsóknareyðublöð má finna hér.