Beint streymi í dag kl. 17:00 frá formannapallborði verkalýðshreyfingarinnar

ASÍ og BSRB hafa fengið formenn flokka í framboði til að ræða kjör launafólks í aðdraganda kosninga í dag milli kl. 17:00 og 19:00.

Fundurinn verður Hilton Nordica í Reykjavík en einnig verður boðið upp á beint streymi.
Yfirskrift fundarins er Samfélag á krossgötum, en þar sitja formenn allra flokka í framboði á landsvísu fyrir svörum um stefnu í málum sem helst varða afkomu og lífsgæði launafólks í landinu. Þau verða knúin svara um þeirra sýn á hvernig samfélag þau vilja byggja, og fyrir hvern.

Pallborðinu stýra Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.