Stjórnin fundaði á Illugastöðum

Það fór vel um þá stjórnarmenn sem mættu á fundinn í stofunni í húsi nr. 18
Það fór vel um þá stjórnarmenn sem mættu á fundinn í stofunni í húsi nr. 18

Fundur var haldinn í aðalstjórn Einingar-Iðju í gær og fór hann fram á Illugastöðum í Fnjóskadal þar sem félagið á 14 orlofshús. Fjölmörg mál voru á dagskrá, m.a. var rætt um stöðuna í samningamálum, farið yfir niðurstöður kannana vegna sumarleigu orlofshúsa og íbúða og fleira.

Fundurinn fór fram í húsi félagsins nr. 18 og var fyrsta mál á dagskrá að skoða húsið, en flestir stjórnarmenn voru að sjá það í fyrsta sinn eftir að framkvæmdum lauk sl. vor.