Stjórnarkjör

Á fundi trúnaðarráðs sem var að ljúka var samþykkt tillaga uppstillingarnefndar að lista stjórnar og trúnaðarráðs Einingar-Iðju fyrir starfsárið 2025-2026. Einnig var samþykkt eftirfarandi tillaga um skilafrest lista:

Stjórnarkjör
Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2025-2026 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. 

Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum 60 einstaklingum í trúnaðarráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og tveimur til vara til eins árs. Einnig er hægt að bjóða fram einungis gegn formanni og eða ritara til tveggja ára.

Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félagsmanna.

Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi fimmtudagsins 27. febrúar 2025. 

Akureyri 18. febrúar 2025
Stjórn Einingar-Iðju