Stjórnarkjör

Á fundi trúnaðarráðs félagsins sem stendur yfir var samþykkt tillaga uppstillingarnefndar að lista stjórnar og trúnaðarráðs Einingar-Iðju fyrir starfsárið 2023-2024. Einnig var samþykkt eftirfarandi tillaga um skilafrest lista:

Stjórnarkjör
Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um einstakling í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2023-2024 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. 

Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum 100 einstaklingum í trúnaðarráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og einum til vara til eins árs. Einnig er hægt að bjóða fram einungis gegn formanni og eða ritara til tveggja ára og meðstjórnanda til eins árs

Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félagsmanna. 

Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi miðvikudagsins 22. febrúar 2023. 

Akureyri 13. febrúar 2023
Stjórn Einingar-Iðju