Stjórn Einingar-Iðju ályktar og varar við „Virðingu”

Stjórn Einingar-Iðju tekur heilshugar undir ályktanir Alþýðusambands Íslands og formanna Starfsgreinasambands Íslands ásamt Eflingu þar sem fjallað er um félagið „Virðingu” sem stofnað var sem stéttarfélag án þess að uppfylla grundvallarskilyrði sem um slík félög gilda. Eining-Iðja skorar á starfsfólk í veitingageiranum að halda sig fjarri þessu félagi og taka ekki þátt í starfsemi sem miðar að því einu að skerða kjör og grafa undan réttindum sem áunnist hafa með áratuga baráttu.   

Eining-Iðja segir við alla heiðvirða atvinnurekendur að hafna afdráttarlaust markmiðum og aðferðarfræði veitingamanna á vettvangi SVEIT og „Virðingar” sem grafa undan réttindum launafólks til þess eins að skapa sjálfum sér betri samkeppnisaðstöðu gagnvart þeim sem löglega standa að rekstri fyrirtækja sinna.   

Eining-Iðja kallar eftir skilyrðislausri samstöðu með launafólki í veitingageiranum og lýsir yfir stuðningi við réttindabaráttu þess og við gerð raunverulegra kjarasamninga í stað skipulegrar viðleitni til að níðast á láglaunafólki, ekki síst innflytjendum og ungmennum. Árásum af þessum toga verður mætt með þeim vopnum sem verkalýðshreyfingin býr yfir.    

Kjarasamningur „Virðingar” við SVEIT felur í sér augljósan ásetning um að skerða verulega kjör og réttindi starfsfólks í veitingageiranum. Það á við um lengingu dagvinnutíma, lækkun vaktaálags, niðurfærslu orlofsréttinda, skertan veikindarétt og fleira. Að auki uppfyllir „Virðing” ekki ýmsar lögbundnar skyldur sínar gagnvart félagsmönnum m.a.  er varðar rekstur sjúkrasjóðs og fræðslusjóðs.