Starfsmenn á námskeiði - breyttur opnunartími

Minnum á að lokað var á skrifstofu félagsins á Akureyri kl. 12:00 í dag, miðvikudaginn 19. október, vegna námskeiðs starfsmanna. Opnum aftur kl. 13:30 á morgun, fimmtudaginn 20. október.

Skrifstofur félagsins í Fjallabyggð og á Dalvík verða lokaðar frá kl. 11:00 á miðvikudeginum og opna á ný á hefðbundnum tíma á föstudeginum.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Einu sinni á ári fara starfsmenn Einingar-Iðju á námskeið til að styrkja þá í starfi, ekki síst í þeim tilgangi til að geta veitt félagsmönnum enn betri þjónustu.